Skip to content

vefforritun/vef1-2023

Repository files navigation

Vefforritun 1, 2023

Hér má nálgast allt námsefni, dæmi og verkefni í áfanganum vefforritun 1 kenndan við HÍ haustið 2023.

Kennsluáætlun

Vika Mánudagur Viðfangsefni Verkefni Skil
1 21. ágúst Kynning; inngangur; HTML; Netlify Verkefni 1
2 28. ágúst Element; töflur, listar, form; að skrifa HTML; aðgengi & SEO Verkefni 2 Verkefni 1
3 4. september CSS; box model; specificity og cascade; visual formatting; Letur & litir Verkefni 3 Verkefni 2
4 11. september Flexbox; CSS virkni & stuðningur Verkefni 4 Verkefni 3
5 18. september Skalanlegir vefir; hönnun; grid; kvikun Verkefni 5 Verkefni 4
6 25. september node.js & npm; Sass & Stylelint CSS í stærri verkefnum Verkefni 5; Hópverkefni 1
7 2. október Git & GitHub; JavaScript: gildi, týpur, virkjar Verkefni 5
8 9. október JavaScript: stýriskipanir, föll, fylki, hlutir Verkefni 6
9 16. október Einingar; forritun á vef: DOM og atburðir Verkefni 7 Verkefni 6
10 23. október Ósamstillt forritun; HTTP & form; ajax; eslint Verkefni 8; Hópverkefni 2 Verkefni 7; Hópverkefni 1
11 30. október Tæki & tól; villumeðhöndlun; reglulegar segðir; fallaforritun Verkefni 9 Verkefni 8
12 6. nóvember Hlutir; HTML5 og Web APIs; prófanir Verkefni 10 Verkefni 9
13 13. nóvember Aðstoð, umræður; verkefnatími; upplýsingar um lokapróf Verkefni 10
14 20. nóvember Samantekt og upprifjun; aðstoð; umræður Hópverkefni 2

Nánar er fjallað um kennsluáætlun og námsefni í viku 1.

Kennslualmanak háskólaárið 2023–2024.

Vikublöð

Hvert vikublað samanstendur af:

  • Fyrirlestrum vikunnar, vísun í upptekna fyrirlestra og hugsanlega aukaefni tengt þeim.
  • Námsefni, lesefni og lykilhugtök fyrir vikuna.
  • Dæmi tengd fyrirlestrum og lesefni, skoða ætti og keyra dæmi meðfram uppteknum fyrirlestrum. Farið verður yfir að einhverju leiti í tíma.
  • „Verkefni vikunnar“ inniheldur verkefni fyrir vikuna sem nemendur vinna: í tímum, dæmatímum og sjálfstætt.

Námsefni og lesefni

Allt námsefni og lesefni er undir namsefni/.

Fyrirlestrar

Fyrirlestrar eru haldnir 15:00-17:20 á mánudögum.

Námsefni vikunnar er sett inn í vikunni áður. Fyrirlestrarnir sjálfir fara í nánari yfirferð á mikilvægum atriðum úr fyrirlestrum, yfirferð á dæmum og umræður.

Upptökur af öllum fyrirlestrum á YouTube.

Dæmi

Öll dæmi eru undir viðeigandi námsefni í daemi/ möppu.

Til að sækja dæmi er hægt að sækja allt efni frá þessu GitHub repo með því að nota „download“ virkni eða opna vef útgáfu af dæmum þar sem hægt er að skoða þau beint í vafra.

Vikur

Verkefni

Verkefni eru sett fyrir formlega í fyrirlestri á mánudegi (þau gætu verið gerð aðgengileg fyrr) og skal skila fyrir lok fimmtudags (seinasta lagi 23:59) vikunni eftir. Sýnilausn er gerð aðgengileg á föstudegi eftir skil.

Öll skil fara fram á Canvas.

Hópverkefni

  • Hópverkefni 1.
    • Sett fyrir í lok september, skilist í lok október.
  • Hópverkefni 2.
    • Sett fyrir í lok október, skilist í lok nóvember.

Dæmatímar

Dæmatímar eru í vikum 2–14.

Sjá á Uglu og Canvas síðu námskeiðs.

Lokapróf

Lokapróf haldið þriðjudaginn 28. nóvember frá kl. 13:30–16:30, Inspera heimapróf.

Efni til prófs.

Hægt er að nálgast eldri lokapróf á Uglu.

About

Vefforritun 1 kennd haustið 2023

Resources

Stars

Watchers

Forks

Releases

No releases published

Packages

No packages published

Languages